Langamýri 22 - umsókn um lóðarstækkun

Málsnúmer 2019060100

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 317. fundur - 12.06.2019

Erindi dagsett 5. júní 2019 þar sem Garðar Þór Garðarsson sækir um stækkun lóðar nr. 22 við Löngumýri til samræmis við núverandi notkun svæðisins. Meðfylgjandi er uppdráttur sem sýnir fyrirhugaða stækkun.
Svæðið er ódeiliskipulagt. Skipulagsráð samþykkir því ekki að stækka lóðina í samræmi við erindi þar sem það myndi fela í sér ósamræmi við legu lóðarmarka aðliggjandi lóða við opið svæði austan við lóðir við Löngumýri.