Styrktarsjóður EBÍ 2019

Málsnúmer 2019030376

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3634. fundur - 04.04.2019

Erindi dagsett 25. mars 2019 frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands (EBÍ) varðandi umsóknir í styrktarsjóð EBÍ 2019. Aðildarsveitarfélag sendir aðeins inn eina umsókn sem skila ber á þar til gerðu eyðublaði. Umsóknir skulu vera vegna sérstakra framfaraverkefna á vegum sveitarfélaganna en ekki vegna almennra rekstrarverkefna þeirra. Umsóknarfrestur er til aprílloka.
Bæjarráð hvetur ráð og svið bæjarins til að skoða verkefni sem falla undir reglur sjóðsins og senda tillögur til bæjarstjóra fyrir 25. apríl nk.