Karl Guðmundsson - umsókn um samning við Menningarsjóð 2019

Málsnúmer 2019020116

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 274. fundur - 21.03.2019

Erindi dagsett 5. febrúar 2019 frá Ingibjörgu Auðunsdóttur, f.h. Karls Guðmundssonar, þar sem óskað er eftir samstarfssamningi við Menningarsjóð til 2ja ára að upphæð kr. 400.000 hvort ár vegna verkefnisins Samspil - Interplay sem m.a. felur í sér gerð heimildarmyndar um list Karls Guðmundssonar myndlistarmanns.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að gerður verði samstarfssamningur til tveggja ára að upphæð kr. 250.000 pr. ár.