Tillaga til þingsályktunar um mótun stefnu sem eflir fólk af erlendum uppruna til þátttöku í íslensku samfélagi, 274. mál 2018

Málsnúmer 2019020003

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3626. fundur - 07.02.2019

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 31. janúar 2019 frá velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um mótun stefnu sem eflir fólk af erlendum uppruna til þátttöku í íslensku samfélagi, 274. mál 2018.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 21. febrúar nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/149/s/0305.html

Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sat fund bæjarráðs undir þessum lið.