Kjarnagata, reitur VÞ12 - umsókn um breytingu á deiliskipulagi og umsókn um lóð

Málsnúmer 2018050223

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 292. fundur - 30.05.2018

Erindi dagsett 23. maí 2018 þar sem Ragnar Hauksson fyrir hönd FISK kompanís ehf., kt. 520613-0800, óskar eftir breytingu á deiliskipulagi á lóð sunnan við Kjarnagötu 2, reit VÞ12. FISK kompaní er staðsett í Kjarnagötu 2 og fyrirhugað er að bjóða upp á frekari þjónustu sem krefst stærra húsnæðis.
Skipulagsráð frestar erindinu og felur sviðsstjóra skipulagssviðs að skoða mögulegar breytingar á deiliskipulagi svæðisins með tilliti til fjölgunar lóða og umferðarskipulags á svæðinu.