Halldóruhagi 8 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2018040167

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 673. fundur - 13.04.2018

Erindi í tölvupósti dagsettum 6. apríl 2018 þar sem Anton Örn Brynjarsson fyrir hönd lóðarhafa sækir um leyfi fyrir jarðvegsskiptum á lóðinni nr. 8 við Halldóruhaga samkvæmt fyrirliggjandi teikningum með umsókn um byggingarleyfi.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 679. fundur - 24.05.2018

Erindi dagsett 6. apríl 2018 þar sem Anton Örn Brynjarsson fyrir hönd Bergfestu ehf., kt. 610515-0370, sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi merkt 8a á lóð nr. 8 við Halldóruhaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Önnu Margréti Hauksdóttur. Innkomnar nýjar teikningar 17. maí 2018.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 683. fundur - 05.07.2018

Erindi dagsett 21. júní 2018 þar sem Anna Margrét Hauksdóttir fyrir hönd Bergfestu ehf., kt. 610515-0370, sækir um undanþágu frá upphituðu bílastæði f. hreyfihamlaða við fjölbýlishús nr. 8a við Halldóruhaga, þar sem engin upphitun er í gangstétt milli bílastæða og aðallóðar. Meðfylgjandi er skýringarmynd.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 686. fundur - 01.08.2018

Erindi dagsett 27. júlí 2018 þar sem Anna Margrét Hauksdóttir fyrir hönd Bergfestu ehf., kt. 610515-0370, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af Halldóruhaga 8a. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Önnu Margréti Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 819. fundur - 24.06.2021

Lagðir fram nýir uppdrættir eftir Fanneyju Hauksdóttur vegna breytinga á húsnúmerum.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.