Lífdísill - Orkey ehf óskar eftir viðræðum vegna kaupa á lífdísli til malbiksframleiðslu og íblöndurnar á strætó

Málsnúmer 2018020410

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 27. fundur - 23.02.2018

Lagt fram erindi frá Orkey ehf dagsett 8. febrúar 2018 vegna beiðni um viðræður við Akureyrarkaupstað um kaup á lífdísli til malbiksframleiðslu og íblöndunar á strætó.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð er jákvætt fyrir því að auka notkun á lífdísli og felur forstöðumanni umhverfismiðstöðvar að fara í viðræður við Orkey ehf.