Umhverfis- og mannvirkjaráð

27. fundur 23. febrúar 2018 kl. 08:15 - 10:45 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Eiríkur Jónsson varaformaður
  • Óskar Ingi Sigurðsson
  • Sæbjörg Sylvía Kristinsdóttir
  • Gunnar Gíslason
  • Jón Þorvaldur Heiðarsson
  • Hermann Ingi Arason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Dóra Sif Sigtryggsdóttir Forstöðumaður rekstrardeildar
Dagskrá
Óskar Ingi Sigurðsson B-lista mætti í forföllum Ingibjargar Ólafar Isaksen.
Jón Þorvaldur Heiðarsson Æ-lista mætti í forföllum Þorsteins Hlyns Jónssonar.

1.Fjárhagsáætlun 2018 - umhverfis- og mannvirkjasvið

Málsnúmer 2017050203Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 21. febrúar 2018 vegna nýframkvæmdaverkefna í umhverfismálum árið 2018.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála og Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfis- og sorpmála sátu fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framkvæmdaáætlun samkvæmt framlögðum gögnum.

2.AkvaFuture 20.000 tonna laxeldi í lokuðum eldiskvíum í Eyjafirði - beiðni um umsögn

Málsnúmer 2018010406Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 24. janúar 2018 frá Skipulagsstofnun þar sem kemur fram að AkvaFuture hafi sent Skipulagsstofnun tillögu að matsáætlun um 20.000 tonna laxeldi í lokuðum eldiskvíum í Eyjafirði. Óskað er eftir að Akureyrarbær gefi umsögn um tillöguna í samræmi við 2. mgr. 8. gr. laga nr. 106/2000 og 17. gr. reglugerðar nr. 660/2015 um mat á umhverfisáhrifum. Umsögn óskast send Skipulagsstofnun fyrir 12. febrúar 2018.

Einnig lagt fram minnisblað dagsett 22. febrúar 2018 vegna málsins.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð frestar afgreiðslu til næsta fundar sem er áætlaður 2. mars 2018.
Óskar Ingi Sigurðsson vék af fundi kl. 9:40.

3.Lífdísill - Orkey ehf óskar eftir viðræðum vegna kaupa á lífdísli til malbiksframleiðslu og íblöndurnar á strætó

Málsnúmer 2018020410Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Orkey ehf dagsett 8. febrúar 2018 vegna beiðni um viðræður við Akureyrarkaupstað um kaup á lífdísli til malbiksframleiðslu og íblöndunar á strætó.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð er jákvætt fyrir því að auka notkun á lífdísli og felur forstöðumanni umhverfismiðstöðvar að fara í viðræður við Orkey ehf.

4.Compact of Mayors - verkefni umhverfis- og mannvirkjasviðs

Málsnúmer 2018020409Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Vistorku ehf dagsett 18. janúar 2018 vegna kolefnishlutlausrar Akureyri og þátttöku Akureyrarkaupstaðar í Compact of Mayors.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð frestar afgreiðslu til næsta fundar sem áætlaður er 2. mars 2018.

5.Festa og lofslagsmarkmið

Málsnúmer 2018020427Vakta málsnúmer

Lögð fram kynning á FESTA Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja í loftlagsmálum og boð þess um aðild Akureyrarkaupstaðar.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð frestar afgreiðslu til næsta fundar sem áætlaður er 2. mars 2018.

6.Restart Ísland - styrkbeiðni

Málsnúmer 2018020411Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Restart Ísland hópnum dagsett 11. janúar 2018 vegna beiðni um styrkveitingu að upphæð kr. 200.000 vegna verkefnisins.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu í bæjarráði.

7.Naustaborgir - reiðleiðir

Málsnúmer 2018020420Vakta málsnúmer

Lagt fram skilamat fyrir framkvæmdina dagsett 22. febrúar 2018.

8.Drottningarbrautarstígur - Leikhúsbrú

Málsnúmer 2017100322Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað 3 dagsett 21. febrúar 2018 vegna opnunar tilboða í smíði brúarinnar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að samið verði við lægstbjóðanda Guðmund Guðlaugsson.

9.Naustaskóli 6. áfangi - lóð

Málsnúmer 2017020140Vakta málsnúmer

Lögð fram stöðuskýrsla 2 dagsett 21. febrúar 2018.

10.Verkfundargerðir 2018

Málsnúmer 2018010235Vakta málsnúmer

Eftirfarandi verkfundargerðir lagðar fram á fundinum:

Drottningarbrautarstígur Leikhúsbrú: 1. verkfundur dagsettur 13. desember 2017.

Klettaborg íbúðakjarni: 16. fundur verkefnisliðs dagsettur 22. janúar 2018.

Listasafn endurbætur: 14.- 16. verkfundur dagsettir 18. janúar, 1. og 15. febrúar 2018.

Naustahverfi Hagar: 1. verkfundur dagsettur 24. janúar 2018.

Fundi slitið - kl. 10:45.