Fimleikafélag Akureyrar FIMAK - Rekstrarsamningur

Málsnúmer 2017110224

Vakta málsnúmer

Frístundaráð - 18. fundur - 23.11.2017

Erindi dagsett 28. október 2017 frá stjórn Fimleikafélags Akureyrar þar sem óskað er eftir að vinna verði hafin við nýjan samning og farið fram á hækkun rekstrarstyrks frá sveitarfélaginu.

Erindið var sent áfram frá stjórn ÍBA.
Afgreiðslu frestað þar til fyrir liggur niðurstaða með lausn á rekstarvanda félagsins.