Sundlaug Akureyrar og Glerárlaug - aðgengi fyrir fatlaða

Málsnúmer 2017110212

Vakta málsnúmer

Frístundaráð - 21. fundur - 11.01.2018

Bréf dagsett 28. nóvember 2017 frá Notendaráði fatlaðs fólks í Eyjafirði þar sem tilmælum er beint til ráðsins að kanna með þörf á auknu framboði á sundtímum fyrir fólk með fötlun sem þarf að þjálfa sig í a.m.k. 29°C heitri laug.
Frístundaráð samþykkir að fela deildarstjóra íþróttamála að kanna með möguleika á tíma fyrir þennan hóp í innilaug Sundlaugar Akureyrar.