Vinátta í verki - landssöfnun vegna náttúruhamfaranna á Grænlandi

Málsnúmer 2017070012

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3560. fundur - 06.07.2017

Lögð fram tillaga um að bæjarráð samþykki að Akureyrarbær veiti styrk til landssöfnunarinnar, Vinátta í verki, vegna náttúruhamfaranna á Grænlandi.
Bæjarráð samþykkir að veita kr. 1.000.000 í landssöfnunina, Vinátta í verki, vegna náttúruhamfaranna á Grænlandi. Styrkurinn færist af styrkveitingum bæjarráðs.