Tillaga til þingsályktunar um opnun neyðarbrautarinnar á Reykjavíkurflugvelli, 156. mál

Málsnúmer 2017040072

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3552. fundur - 19.04.2017

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 10. apríl 2017 frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um opnun neyðarbrautarinnar á Reykjavíkurflugvelli, 156. mál 2017.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 28. apríl nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/146/s/0223.html
Bæjarráð vísar í bókun frá 5. janúar 2017 og felur bæjarstjóra að senda bókunina inn sem umsögn Akureyrarbæjar.