Slysavarnafélagið Landsbjörg - leiga á íþróttahöll vegna landsþings 2017

Málsnúmer 2017040060

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3552. fundur - 19.04.2017

Erindi dagsett 5. apríl 2017 frá Jóni Svanberg Hjartarsyni framkvæmdastjóra fyrir hönd Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Í erindinu er óskað eftir styrk frá Akureyrarbæ vegna húsaleigu á Íþróttahöllinni á Akureyri vegna landsþings Landsbjargar sem haldið verður á Akureyri dagana 19. og 20. maí nk.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir að styrkja félagið með því að veita því afnot af Íþróttahöllinni án endurgjalds. Styrkurinn greiðist af liðnum styrkveitingar bæjarráðs.

Bæjarráð - 3559. fundur - 29.06.2017

Lagt fram til kynningar bréf dagsett 16. júní 2017 frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu þar sem Akureyrarbæ er þökkuð velvild í garð félagsins vegna landsþings sem haldið var í Íþróttahöllinni á Akureyri dagana 19. og 20. maí sl.