Iceland Airwaves 2017 - styrkbeiðni

Málsnúmer 2016110150

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 220. fundur - 01.12.2016

Erindi dags. 16. nóvember 2016 frá Grími Atlasyni f.h. IA tónlistarhátíðar ehf þar sem óskað er eftir stuðningi við að halda tónlistarhátíðina Iceland Airwaves á Akureyri árið 2017. Jafnframt er óskað stuðningi við verkefnið næstu tvö árin þar á eftir. Nú hefur verið tilkynnt um að hátíðin kemur til Akureyrar á næsta ári.
Stjórn Akureyrarstofu lýsir mikilli ánægju með að tónlistarhátíðin Iceland Airwaves verði haldin á Akureyri á sama tíma og í Reykjavík á næsta ári. Fyrir utan þá fjölbreytni sem hún færir menningarlífinu í bænum telur stjórn Akureyrarstofu að mikil markaðstækifæri felist í komu hátíðarinnar hingað. Á þeim grunni tekur stjórnin jákvætt í að styðja við hátíðina og felur framkvæmdastjóra að ræða við bréfritara um gerð samstarfssamning þar um.