Samband íslenskra sveitarfélaga - staða samningamála

Málsnúmer 2016110114

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3531. fundur - 24.11.2016

Karl Björnsson framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, Halldór Halldórsson formaður Sambandsins og Inga Rún Ólafsdóttir sviðsstjóri kjarasviðs Sambandsins mættu á fund bæjarráðs.



Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri, Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri og Halla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.



Einnig sátu Dagbjört Elín Pálsdóttir bæjarfulltrúi S-lista, Eva Hrund Einarsdóttir bæjarfulltrúi D-lista og Njáll Trausti Friðbertsson bæjarfulltrúi D-lista fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð þakkar fulltrúum Sambandsins fyrir komuna og upplýsandi umræður.



Bæjarráð Akureyrar skorar á stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga að boða sem allra fyrst til fundar með sveitarstjórnum til þess að ræða á lausnarmiðaðan hátt þá alvarlegu stöðu sem er yfirvofandi í grunnskóla- og tónlistarskólastarfi vegna kjaradeilna Félags grunnskólakennara og Félags tónlistarkennara við Samband íslenskra sveitarfélaga. Þar verði tekin umræða um það hvernig megi leysa þessar deilur, hvaða áhrif ákveðnar lausnir hafa á stöðu sveitarfélaganna og hvernig hægt er að móta samningsferli við aðildarfélög Kennarasambands Íslands þannig að komast megi hjá svo alvarlegum deilum sem iðulega koma upp í aðdraganda kjarasamninga við þessi félög.