Brautarhóll - umsókn um bílastæði

Málsnúmer 2016090181

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 603. fundur - 06.10.2016

Erindi dagsett 30. september 2016 þar sem Þorsteinn H. Jónsson sækir um leyfi til að gera bílastæði við Brautarhól með aðkomu frá Þverholti í stað núverandi stæðis við Krossanesbraut. Meðfylgjandi er mynd.
Skipulagsstjóri heimilar umsækjanda að gera á eigin kostnað 6 metra breitt bílastæði. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi hafi samband við framkvæmdadeild vegna úrtaks í kantstein.