Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

603. fundur 06. október 2016 kl. 13:00 - 14:45 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Bjarki Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Björn Jóhannsson
  • Leifur Þorsteinsson fundarritari
Fundargerð ritaði: Leifur Þorsteinsson verkefnisstjóri
Dagskrá

1.Vörðutún 2 - umsókn um garðskúr

Málsnúmer 2016090124Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 19. september 2016 þar sem Pálmi Gauti Hjörleifsson sækir um leyfi fyrir 14,5 m² garðskúr á lóð nr. 2 við Vörðutún skv. meðfylgjandi myndum. Fyrir liggur umsögn framkvæmdadeildar vegna sjónvegalengda.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

2.Brautarhóll - umsókn um bílastæði

Málsnúmer 2016090181Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 30. september 2016 þar sem Þorsteinn H. Jónsson sækir um leyfi til að gera bílastæði við Brautarhól með aðkomu frá Þverholti í stað núverandi stæðis við Krossanesbraut. Meðfylgjandi er mynd.
Skipulagsstjóri heimilar umsækjanda að gera á eigin kostnað 6 metra breitt bílastæði. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi hafi samband við framkvæmdadeild vegna úrtaks í kantstein.

3.Miðhúsabraut 1 - Skautahöll - byggingarleyfi fyrir viðbyggingu og breytingum

Málsnúmer 2015060060Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 24. júní 2016 þar sem Gísli Kristinsson f.h. Akureyrarbæjar, kt. 410169-6229, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir Miðhúsabraut 1. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Gísla Kristinsson. Innkomnar teikningar 8. júlí 2016 og 3. október 2016.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

4.Hringteigur 2 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016090043Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8. september 2016 þar sem Kári Magnússon f.h. Ríkiseigna, kt. 690981-0259, sækir um breytingar á 8. áfanga VMA við Hringteig 2. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur. Innkomnar teikningar 3. október 2016.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

5.Sómatún 3 - byggingarleyfi

Málsnúmer BN060266Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 5. október 2016 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Tréverks ehf., kt. 660269-2829, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af húsi nr. 3 við Sómatún.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

6.Gleráreyrar 1, bil 27, 28 og 29 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016100035Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 27. september 2016 þar sem Ingólfur Guðmundsson fyrir hönd EF1 ehf., kt. 681113-0960, sækir um breytingar á bilum 27, 28 og 29 á Glerártorgi, Gleráreyrum 1. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

7.Þórsstígur 4 - umsókn um byggingarleyfi - viðbygging og breytingar inni

Málsnúmer BN100184Vakta málsnúmer

Lagðar fram teikningar eftir Loga Má Einarsson með breytingum frá áður samþykktum teikningum af Þórsstíg 4 vegna athugasemda við lokaúttekt. Innkomnar teikningar 27. september 2016.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

8.Grænamýri 3 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016090149Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 23. september 2016 þar sem Þórir Guðmundsson f.h. Harrys Reynis Ólafssonar sendir inn fyrirspurn vegna breytinga á húsi nr. 3 við Grænumýri. Meðfylgjandi er mynd.
Skipulagsstjóri tekur jákvætt í erindið og mun afgreiða umsókn um byggingarleyfi þegar hún berst.

9.Jaðarstún 17-19 - umsókn um úrtöku á kantsteini

Málsnúmer 2016090140Vakta málsnúmer

Erindi í tölvupósti dagsettum 22. september 2016 þar sem Örn Jóhannsson f.h. Byggingarfélagsins Hyrnu ehf., kt. 710594-2019, sækir um stækkun á úrtaki í kantstein við húsið nr. 17-19 við Jaðarstún skv. meðfylgjandi teikningu.
Skipulagsstjóri hafnar erindinu þar sem aðeins þarf úrtak fyrir tvo bíla fyrir hvora íbúð skv. samþykktri teikningu.

Fundi slitið - kl. 14:45.