Hrísalundur 3 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016080114

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 599. fundur - 01.09.2016

Erindi dagsett 23. ágúst 2016 þar sem Birgir Snorrason fyrir hönd Brauðgerðar Kr. Jónssonar & co ehf., kt. 480169-0859, sækir um leyfi til að gera sorplúgur á suðurútvegg og færa sorpgáma við hús nr. 3 við Hrísalund.
Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 600. fundur - 08.09.2016

Erindi dagsett 23. ágúst 2016 þar sem Birgir Snorrason fyrir hönd Brauðgerðar Kr. Jónssonar & co ehf., kt. 480169-0859, sækir um leyfi til að gera sorplúgur á suðurútvegg og færa sorpgáma við hús nr. 3 við Hrísalund. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þröst Sigurðsson. Innkomnar teikningar 6. september 2016.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.