Bíladagar 2016

Málsnúmer 2016060128

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 212. fundur - 23.06.2016

Farið yfir helstu atriði af fundi með Bílaklúbbi Akureyrar, lögreglunni og fulltrúum Akureyrarbæjar þar sem farið var yfir framkvæmd bíladaga í ár.
Stjórn Akureyrarstofu lýsir yfir óánægju með þá umferðarmenningu sem fylgdi bíladögum að þessu sinni, en fjöldi kvartana til lögreglu og umfjöllun í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum bendir mjög eindregið til þess að verr hafi tekist til að þessu leyti en síðustu ár. Framkvæmdastjóra falið að halda áfram viðræðum við Bílaklúbbinn um þann lærdóm sem af má draga.