Íslandsstofnun - málefni flóttamanna

Málsnúmer 2016020001

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3493. fundur - 04.02.2016

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 28. janúar 2016 frá Karim Askari framkvæmdastjóra Íslandsstofnunar þar sem hann vill koma á framfæri þökkum fyrir framgöngu Akureyrarbæjar í málefnum flóttamanna. Einnig segir hann að á tímum sem þessum reynir á bróðurlegan kærleika manna í milli og hjálpfýsi og því er ánægjulegt að sjá þegar opinberir aðilar leggja sitt af mörkum í þeim efnum.

Íslandsstofnun vill jafnframt lýsa yfir vilja sínum til að verða að liði með hverjum þeim hætti sem henni er unnt.