Ungmennafélag Akureyrar (UFA) - erindi þar sem óskað er eftir aðgangi afreksmanna að Sundlaug Akureyrar

Málsnúmer 2015100069

Vakta málsnúmer

Íþróttaráð - 176. fundur - 15.10.2015

Erindi dagsett 16. september 2015 frá Sigurði Magnússyni formanni UFA þar sem óskað er eftir styrk í formi aðgangs fyrir afreksmenn félagsins í Sundlaug Akureyrar. Umsögn stjórnar ÍBA fylgir með erindinu.
Íþróttaráð samþykkir erindið.
Íþróttaráð felur forstöðumanni að útfæra framkvæmd og verklag styrkveitinga í formi aðgangs að Sundlaug Akureyrar nánar og kynna fyrir ráðinu.