Íþróttaráð

176. fundur 15. október 2015 kl. 14:00 - 16:00 Fundarsalur á 4. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Árni Óðinsson
  • Birna Baldursdóttir
  • Þórunn Sif Harðardóttir
  • Guðrún Þórsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála ritaði fundargerð
Dagskrá
Jónas Björgvin Sigurbergsson Æ-lista boðaði forföll.

Í upphafi fundar leitaði formaður afbrigða og lagði til að 4. og 5. dagskrárliður yrðu að 8. og 9. dagskrárlið fundarins og var það samþykkt með 4 samhljóða atkvæðum.

1.Íþróttabandalag Akureyrar - áætlanir og rekstur aðildarfélaga - samantektir

Málsnúmer 2015100035Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar samantekt ÍBA á fjárhagsáætlunum og ársreikningum aðildarfélaga.
Íþróttaráð hvetur aðildarfélög ÍBA sem ekki hafa skilað inn ársreikningum 2014 og fjárhagsáætlun 2016 til ÍBA um að gera það sem fyrst.

2.Rekstrarstyrkir íþróttaráðs til aðildarfélaga ÍBA

Málsnúmer 2014100111Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 12. október 2015 frá forstöðumanni íþróttamála varðandi rekstrarstyrki til aðildarfélaga ÍBA árið 2015.
Íþróttaráð samþykkir tillögur forstöðumanns íþróttamála og felur honum að vinna málið áfram.
Birna Baldursdóttir L-lista fór af fundi kl. 15:06.

3.Kvenna-/jafnréttisstyrkir íþróttaráðs

Málsnúmer 2014040042Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar úthlutun jafnréttis-/kvennastyrkja 2015.

4.Fimleikafélag Akureyrar - beiðni um styrk vegna sumaríþróttaskóla

Málsnúmer 2015100066Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15. september 2015 frá Rut Jónsdóttur framkvæmdastjóra Fimleikafélags Akureyrar þar sem óskað er eftir styrk frá Akureyrarbæ til þess að starfrækja íþróttaskóla í íþróttamiðstöðinni Giljaskóla/fimleikahúsinu sumarið 2016. Umsögn stjórnar ÍBA fylgir með erindinu.
Íþróttaráð getur ekki orðið við erindinu en tekur undir orð stjórnar ÍBA þar sem íþróttafélög eru hvött til að skoða mögulegt samstarf í þessum efnum.

5.Ungmennafélag Akureyrar (UFA) - erindi þar sem óskað er eftir aðgangi afreksmanna að Sundlaug Akureyrar

Málsnúmer 2015100069Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 16. september 2015 frá Sigurði Magnússyni formanni UFA þar sem óskað er eftir styrk í formi aðgangs fyrir afreksmenn félagsins í Sundlaug Akureyrar. Umsögn stjórnar ÍBA fylgir með erindinu.
Íþróttaráð samþykkir erindið.
Íþróttaráð felur forstöðumanni að útfæra framkvæmd og verklag styrkveitinga í formi aðgangs að Sundlaug Akureyrar nánar og kynna fyrir ráðinu.

6.Vinir Hlíðarfjalls

Málsnúmer 2011120027Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 1. október 2015 frá vinum Hlíðarfjalls þar sem óskað er eftir að samstarfsamningur verði endurnýjaður til næstu þriggja ára. Drög að nýjum samningi fylgja með erindinu.
Íþróttaráð frestar erindinu og óskar eftir að forsvarsmenn Vina Hlíðarfjalls mæti á fund íþróttaráðs.

7.Vetraríþróttamiðstöð Ísland (VMÍ)

Málsnúmer 2014080131Vakta málsnúmer

Umræður um áframhaldandi samstarf og uppbyggingu VMÍ á Akureyri.
Samningur milli Akureyrarbæjar og ríkis vegna VMÍ rann úr árið 2008. Íþróttaráð harmar að ekki hafi náðst samningar við ríkið vegna áframhaldandi uppbyggingar vetraríþróttaaðstöðu á Akureyri.
Íþróttaráð leggur áherslu á að samningar náist sem fyrst og hvetur ríkið til að koma að frekari uppbyggingu í anda markmiða fyrri samninga um eflingu vetraríþrótta.

8.Kvenna-/jafnréttisstyrkir íþróttaráðs

Málsnúmer 2014040042Vakta málsnúmer

Erindi ódagsett frá Stefáni Vilberg Leifssyni formanni körfuknattleiksdeilar Þórs þar sem óskað er eftir styrk og undanþágu á viðmiðum íþróttaráðs vegna afgreiðslu jafnréttisstyrkja.
Íþróttaráð frestar erinindinu til næsta fundar.

9.Íþróttafélagið Þór - ósk um styrk vegna frístundarútu

Málsnúmer 2015100067Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 28. september 2015 frá Eiði Arnari Pálmasyni framkvæmdastjóra Íþróttafélagsins Þórs þar sem félagið óskar eftir 750.000 kr. styrk til að sinna akstri yngstu iðkenda sinna milli skóla og íþróttamannvirkja. Umsögn stjórnar ÍBA fylgir með erindinu.
Íþróttaráð frestar erindinu til næsta fundar.

Fundi slitið - kl. 16:00.