Íþróttafélagið Þór - ósk um styrk vegna frístundarútu

Málsnúmer 2015100067

Vakta málsnúmer

Íþróttaráð - 176. fundur - 15.10.2015

Erindi dagsett 28. september 2015 frá Eiði Arnari Pálmasyni framkvæmdastjóra Íþróttafélagsins Þórs þar sem félagið óskar eftir 750.000 kr. styrk til að sinna akstri yngstu iðkenda sinna milli skóla og íþróttamannvirkja. Umsögn stjórnar ÍBA fylgir með erindinu.
Íþróttaráð frestar erindinu til næsta fundar.

Íþróttaráð - 178. fundur - 05.11.2015

Erindi dagsett 28. september 2015 frá Eiði Arnari Pálmasyni framkvæmdastjóra Íþróttafélagsins Þórs þar sem félagið óskar eftir 750.000 kr. styrk til að sinna akstri yngstu iðkenda sinna milli skóla og íþróttamannvirkja. Umsögn stjórnar ÍBA fylgir með erindinu. Erindinu var frestað á fundi íþróttaráðs 15. október sl.
Íþróttaráð getur ekki orðið við erindinu.
Íþróttaráð hvetur vinnuhóp nýrrar umhverfis- og samgöngustefnu til að kalla aðila innan íþróttahreyfingarinnar að borðinu við endurskoðun leiðakerfis Strætisvagna Akureyrar.

Árni Óðinsson S-lista hafði lýsti sig vanhæfan til að fjalla um þennan lið.
Með vísan til 7. mgr. 20. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 var meint vanhæfi lagt upp til atkvæða fyrir íþróttaráð og var það samþykkt með 4 samhljóða atkvæðum.
Árni Óðinnsson sat ekki fundinn við umræðu og afgreiðslu málsins.