Fimleikafélag Akureyrar - beiðni um styrk vegna sumaríþróttaskóla

Málsnúmer 2015100066

Vakta málsnúmer

Íþróttaráð - 176. fundur - 15.10.2015

Erindi dagsett 15. september 2015 frá Rut Jónsdóttur framkvæmdastjóra Fimleikafélags Akureyrar þar sem óskað er eftir styrk frá Akureyrarbæ til þess að starfrækja íþróttaskóla í íþróttamiðstöðinni Giljaskóla/fimleikahúsinu sumarið 2016. Umsögn stjórnar ÍBA fylgir með erindinu.
Íþróttaráð getur ekki orðið við erindinu en tekur undir orð stjórnar ÍBA þar sem íþróttafélög eru hvött til að skoða mögulegt samstarf í þessum efnum.