Víðivellir 2 - skáhalli á gangstéttarbrún og p-merkt stæði

Málsnúmer 2015080075

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 557. fundur - 25.09.2015

Erindi dagsett 17. ágúst 2015 þar sem Geirþrúður Elísdóttir og Ingimar Víglundsson sækja um að gerður verði skáhalli á gangstétt og p-merkt stæði við hús nr. 2 við Víðivelli. Meðfylgjandi er afstöðumynd.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir bílastæði vestan húss og 3 metra úrtak úr kantsteini. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.