Hafnarstræti 104 - leyfi fyrir styttum og sætum fyrir framan verslun

Málsnúmer 2015060024

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 205. fundur - 10.06.2015

Erindi dagsett 2. júní 2015 þar sem Sigurður Guðmundsson f.h. Hórasar ehf., kt. 440608-0430, sækir um leyfi fyrir styttum, borðum og stólum fyrir utan hús nr. 104 í Hafnarstræti.
Skipulagsnefnd heimilar staðsetningu á styttum, borðum og stólum í göngugötunni fyrir framan Hafnarstræti 104 en þó einungis þannig að stytturnar (tröll og ísbirnir) og búnaðurinn hindri ekki gangandi umferð um svæðið.