Bíladagar 2015

Málsnúmer 2015050176

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 542. fundur - 28.05.2015

Erindi dagsett 26. maí 2015 þar sem Einar Gunnlaugsson f.h. Bílaklúbbs Akureyrar, kt. 660280-0149, sækir um leyfi fyrir viðburðarskiltum á gámum við Hlíðarfjallsveg, Hörgárbraut og Drottningarbraut frá 9. til 23. júní, tjaldsvæði á svæði félagsins Hlíðarfjallsvegi 13 frá 12. til 22. júní. Einnig er sótt um leyfi fyrir græjukeppni 16. júní, milli kl. 20:00 og 22:00, á svæði austan við Skeljung við Hörgárbraut.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið með fyrirvara um jákvæða umsögn heilbrigðiseftirlits vegna tjaldsvæðis.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 543. fundur - 04.06.2015

Erindi móttekið 3. júní 2015 þar sem Einar Gunnlaugsson f.h. Litboltavöllur.is sækir um leyfi fyrir litboltavelli á samkomuhússflötinni frá 13. til 21. júní.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið. Skv. samþykkt Akureyrarkaupstaðar um götu- og torgsölu, b.lið 3. gr. er leyfisgjald kr. 50.000,-.