Hrísey - umsókn um lóð vegna kaldavatnsholu á landi nr. 152145

Málsnúmer 2015040036

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 201. fundur - 15.04.2015

Edward H. Huijbens V-lista bar upp vanhæfi sitt í næstu 5 málum en því var hafnað.
Erindi dagsett 8. apríl 2015 þar sem Bergur Steingrímsson f.h. Norðurorku hf., kt. 550978-0169, sækir um 860 m² lóð vegna kaldavatnsholu á landi nr. 152145. Einnig er sótt um byggingarreit að stærð 10x10 m fyrir borholuskúrinn.

Meðfylgjandi er uppdráttur eftir Berg Steingrímsson.
Skipulagsnefnd samþykkir erindið og felur lóðarskrárritara að gefa út lóðarsamning með afmörkun lóðarinnar.