Hafnarstræti 99-101 - umsókn um breytingar á innra skipulagi

Málsnúmer 2015030140

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 532. fundur - 19.03.2015

Erindi dagsett 16. mars 2015 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Ullarkistunar ehf., kt. 680995-2229, og AJS fasteigna ehf., kt. 420502-2570, sækir um breytingar á skipulagi 1. hæðar húss nr. 99-101 við Hafnarstræti. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Skipulagsstjóri frestar erindinu þar sem innkomin gögn eru ófullnægjandi.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 533. fundur - 26.03.2015

Erindi dagsett 16. mars 2015 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Ullarkistunar ehf., kt. 680995-2229, og AJS fasteigna ehf., kt. 420502-2570, sækir um breytingar á skipulagi 1. hæðar húss nr. 99-101 við Hafnarstræti. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason. Innkomnar teikningar 24. og 25. mars 2015.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Skipulagsnefnd - 201. fundur - 15.04.2015

Skipulagsstjóri lagði fram eftirfarandi umsókn um byggingarleyfi til umsagnar skipulagsnefndar, sbr. samþykkt bæjarstjórnar frá 7. apríl 2015, þar sem óskað er eftir breytingu á innra skipulagi hússins.

Erindi dagsett 16. mars 2015 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Ullarkistunnar ehf., kt. 680995-2229, og AJS fasteigna ehf., kt. 420502-2570, sækir um breytingar á skipulagi 1. hæðar húss nr. 99-101 við Hafnarstræti. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason. Innkomnar teikningar 8. apríl 2015.
Skipulagsnefnd hefur yfirfarið fyrirliggjandi uppdrátt og gerir fyrir sitt leyti ekki athugasemdir við breytingar á innra skipulagi hússins.

Skipulagsstjóra er falið að afgreiða umsókn um byggingarleyfi.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 536. fundur - 16.04.2015

Erindi dagsett 16. mars 2015 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Ullarkistunar ehf., kt. 680995-2229, og AJS fasteigna ehf., kt. 420502-2570, sækir um breytingar á skipulagi 1. hæðar húss nr. 99-101 við Hafnarstræti. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason. Innkomnar teikningar 14. apríl 2015.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.