Heimsókn japanskra listamanna

Málsnúmer 2015010248

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 180. fundur - 04.02.2015

Sendiráð Japans hefur boðist til að senda hóp japanskra listamanna til Akureyrar í júní 2016. Farið er fram á að Akureyrarbær leggi til húsnæði til að hýsa viðburðinn.
Stjórn Akureyrarstofu felur framkvæmdastjóra Akureyrarstofu að ræða við forsvarsmenn Menningarfélags Akureyrar um möguleika á því að taka við viðburðinum og leggja til húsnæði undir hann.