Norðurvegur 6-8 - fyrirspurn um lögmæti íbúðar til útleigu

Málsnúmer 2015010155

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 525. fundur - 22.01.2015

Erindi dagsett 14. janúar 2015 þar sem Teitur Björgvinsson spyrst fyrir um lögmæti íbúðar, í kjallara hússins nr. 6-8 við Norðurveg, Hrísey, til útleigu. Meðfylgjandi eru afstöðumynd og teikningar.

Eigandi hússins er Sparisjóður Norðlendinga ses.
Staðgengill skipulagsstjóra telur að ekki sé hægt að fallast á íbúðarherbergi í kjallara hússins þar sem lofthæð er of lítil miðað við ákvæði byggingarreglugerðar sem er 2,5 metrar.