Lundargata 4 - umsókn um framkvæmdaleyfi

Málsnúmer 2014120093

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 522. fundur - 18.12.2014

Erindi dagsett 16. desember 2014 þar sem Sigurbjörn Viðar Júlíusson sækir um framkvæmdaleyfi til að leggja lagnir um lóð Akureyrarbæjar Lundargötu 4 að baklóð Lundargötu 4 landnr. 148826. Jafnframt fer hann fram á að holræsagjald og tengigjald, sem lagt verður á um áramót, verði ekki innheimt eða að öðrum kosti að gengið verði frá umbeðnum lögnum fyrir áramót. Meðfylgjandi er yfirlýsing um aðgengi að lóðinni.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir að lagnir megi leggja að húsi á baklóð Lundargötu 4 yfir framlóð Lundargötu 4 á tveggja metra ræmu við norðurmörk lóðarinnar og verði það kvöð á framlóð Lundargötu 4.
Ákvörðun um holræsagjald og tengigjöld er vísað til afgreiðslu Norðurorku og fjárreiðudeildar Akureyrarbæjar.