Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

522. fundur 18. desember 2014 kl. 13:00 - 14:30 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Ólafur Jakobsson
  • Leifur Þorsteinsson fundarritari
Fundargerð ritaði: Leifur Þorsteinsson
Dagskrá

1.Gleráreyrar 1 - umsókn um breytingar innan og utanhúss.

Málsnúmer BN070271Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. desember 2014 þar sem Egill Guðmundsson, f.h. Eikar fasteignafélags hf., kt. 590902-3730, leggur fram reyndarteikningar af skipulagi innanhúss. Jafnframt er sótt um breytingar á útliti húss og afmörkuðum skiltaflötum frá áður samþykktum teikningum. Meðfylgjandi eru teikingar eftir Egil Guðmundsson.
Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

2.Hrafnaland 12 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2014120055Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. desember 2014 þar sem Logi Már Einarsson f.h. SS Byggis ehf., kt. 620687-2519, sækir um byggingarleyfi fyrir húsi nr. 12 við Hrafnaland. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

3.Kjarnalundur landnr. 150012 - umsókn um breytingar innanhúss

Málsnúmer 2014120088Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 12. desember 2014 þar sem Magnús Guðjónsson f.h. Kjarnalundar ehf., kt. 541114-0330, sækir um breytingar innanhúss og notkun á Kjarnalundi, landnr. 150012. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

4.Lundargata 4 - umsókn um framkvæmdaleyfi

Málsnúmer 2014120093Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 16. desember 2014 þar sem Sigurbjörn Viðar Júlíusson sækir um framkvæmdaleyfi til að leggja lagnir um lóð Akureyrarbæjar Lundargötu 4 að baklóð Lundargötu 4 landnr. 148826. Jafnframt fer hann fram á að holræsagjald og tengigjald, sem lagt verður á um áramót, verði ekki innheimt eða að öðrum kosti að gengið verði frá umbeðnum lögnum fyrir áramót. Meðfylgjandi er yfirlýsing um aðgengi að lóðinni.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir að lagnir megi leggja að húsi á baklóð Lundargötu 4 yfir framlóð Lundargötu 4 á tveggja metra ræmu við norðurmörk lóðarinnar og verði það kvöð á framlóð Lundargötu 4.
Ákvörðun um holræsagjald og tengigjöld er vísað til afgreiðslu Norðurorku og fjárreiðudeildar Akureyrarbæjar.

5.Mýrarvegur landnr. 148916 - umsókn um breytta notkun og breytingar á húsi

Málsnúmer 2014120087Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 12. desember 2014 þar sem Logi Már Einarsson f.h. Ötuls ehf., kt. 650576-0479, sækir um byggingarleyfi fyrir breyttri notkun og breytingum á húsi við Mýrarveg (Kaupang). Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

6.Sómatún 9-17 - umsókn um breytingar á húsinu

Málsnúmer 2012080126Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 12. desember 2014 þar sem Logi Már Einarsson f.h. Tréverks ehf., kt. 660269-2829, sækir um breytingar frá áður samþykktum teikningum innan- og utanhúss á Sómatúni nr. 9-17. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Loga Má Einarsson.
Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

7.Sporatún 21-29 - byggingarleyfi fyrir raðhúsi

Málsnúmer BN060524Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 9. desember 2014 þar sem Magnús Guðjónsson f.h. Fjölnis hf., kt. 530289-2069, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af Sporatúni 21-29. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason. Innkomnar teikningar 17. desember 2014.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 14:30.