Leik-mynd ehf - beiðni um endurnýjun á rekstrarsamningi 2015

Málsnúmer 2014110086

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 176. fundur - 13.11.2014

Erindi dagsett 13. október 2014 frá Guðbjörgu Ringsted f.h. Leik-myndar ehf um endurnýjun á rekstrarsamningi um leikfangasýningu í Friðbjarnarhúsi.
Akureyrarbær hefur styrkt sýninguna með því að greiða húsaleigu, rafmagn, hita og símakostnað í Friðbjarnarhúsi. Samningur þar að lútandi rennur út í lok árs 2014.
Í þessu erindi frá Leik-mynd ehf er farið fram á að rekstrarsamningurinn verði framlengdur.

Afgreiðslu málsins frestað.