Skipagata 18 - umsókn um stöðuleyfi

Málsnúmer 2014100149

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 513. fundur - 16.10.2014

Erindi dagsett 15. október 204 þar sem Sigurgeir Svavarsson f.h. Kaupvangsstrætis ehf., kt. 570914-1110, sækir um stöðuleyfi fyrir vinnupöllum við Skipagötu 18.

Skipulagsstjóri samþykkir stöðuleyfi fyrir vinnupöllum til 15. nóvember 2014 með eftirfarandi skilyrðum.

Tryggja skal öryggi gangandi sem akandi vegfarenda meðan á verkinu stendur. Halda skal opinni gönguleið fyrir gangandi vegfarendur meðfram eða undir vinnupöllum.