Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

513. fundur 16. október 2014 kl. 13:00 - 14:00 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson
  • Ólafur Jakobsson
Starfsmenn
  • Stefanía Sigmundsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Gleráreyrar 2 - umsókn um skilti

Málsnúmer 2014100071Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. október 2014 þar sem Baldur Karlsson f.h. Slippfélagsins ehf., kt. 631209-1650, sækir um leyfi fyrir skiltum á húsi númer 2 við Gleráreyrar. Meðfylgjandi eru myndir.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

2.Glerárgata 28 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2014090096Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. september 2014 þar sem Ingólfur Guðmundsson f.h. Glerárgötu 28 ehf., kt. 700805-3010, sækir um breytingar á húsi nr. 28 við Glerárgötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Innkomnar teikningar 8. október 2014.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

3.Gránufélagsgata 47 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2013020258Vakta málsnúmer

Innkomnar teikningar 21. ágúst 2014 þar sem Haukur Ásgeirsson f.h. Idea ehf., kt. 601299-2249, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af Gránufélagsgötu 47. Innkomnar teikningar 8. október 2014.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

4.Kjarnagata 43 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2014050099Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 7. október 2014 þar sem Tryggvi Tryggvason f.h. B.E. bygginga ehf., kt. 490398-2529, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af Kjarnagötu 43. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Tryggva Tryggvason.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

5.Súluvegur 2 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2014080069Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15. ágúst 2014 þar sem Hjörtur Narfason f.h. HGH verks ehf., kt. 540510-0400, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á Súluvegi 2. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson.
Innkomnar teikningar 15. október 2014.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.


6.Skipagata 18 - umsókn um stöðuleyfi

Málsnúmer 2014100149Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15. október 204 þar sem Sigurgeir Svavarsson f.h. Kaupvangsstrætis ehf., kt. 570914-1110, sækir um stöðuleyfi fyrir vinnupöllum við Skipagötu 18.

Skipulagsstjóri samþykkir stöðuleyfi fyrir vinnupöllum til 15. nóvember 2014 með eftirfarandi skilyrðum.

Tryggja skal öryggi gangandi sem akandi vegfarenda meðan á verkinu stendur. Halda skal opinni gönguleið fyrir gangandi vegfarendur meðfram eða undir vinnupöllum.

Fundi slitið - kl. 14:00.