Umsókn um styrk úr námsstyrkjasjóði embættismanna Akureyrarbæjar - haust 2013

Málsnúmer 2013110071

Vakta málsnúmer

Fræðslunefnd - 5. fundur - 29.11.2013

Þórgnýr Dýrfjörð framkvæmdastjóri Akureyrarstofu sækir um styrk í Námsstyrkjasjóð embættismanna. Þórgnýr sækir um eins árs leyfi frá sumri 2014 til vors 2015. Þórgnýr hefur hug á að stunda rannsóknartengt meistaranám við Hug- og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri í svokallaðri Ethical leadership sem e.t.v. mætti þýða sem Siðleg forusta. Þórgnýr hefur starfað hjá Akureyrarbæ frá árinu 1995 og hefur því 18 ára starfsreynslu.

Fræðslunefnd samþykkir að veita Þórgný Dýrfjörð námsstyrk til níu mánaða frá hausti 2014.