Austurvegur lnr. 175494 - umsókn um lóð undir skúr

Málsnúmer 2013110015

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 469. fundur - 13.11.2013

Erindi dagsett 1. nóvember 2013 þar sem Brynleifur Siglaugsson f.h. Hornsteins ehf., kt. 610612-0400, sækir um lóð undir skúr sem stendur á opnu svæði norðan Austurvegar í Hrísey.

Þar sem ekki er til deiliskipulag af svæðinu er ekki hægt að verða við beiðni um 300 til 600 fm lóð en skipulagsstjóri samþykkir lóð undir skúrinn af sömu stærð og hann er. Jafnframt er lóðarskrárritara falið að ganga frá lóðarsamningi.