Skipagata 9 - umsókn um leyfi fyrir þjónustuskilti/ljósaskilti

Málsnúmer 2013100157

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 465. fundur - 16.10.2013

Erindi dagsett 15. október 2013 þar sem Þórleifur Stefán Björnsson f.h. T Plúss hf., kt. 531009-1180, sækir um leyfi fyrir þjónustuskilti/ljósaskilti á húsi nr. 9 við Skipagötu. Meðfylgjandi eru samþykki meðeigenda og teikningar.

Staðgengill skipulagsstjóra hafnar erindinu þar sem þegar hafa verið samþykkt skilti allt að 15 fermetrar á húsið sem er leyfileg hámarksstærð skilta á lóðinni skv. Samþykkt um skilti og auglýsingar í lögsögu Akureyrarkaupstaðar.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 467. fundur - 30.10.2013

Erindi dagsett 28. október 2013 þar sem Þórleifur Stefán Björnsson f.h. T Plúss hf., kt. 531009-1180, sækir að nýju um leyfi fyrir þjónustuskilti/ljósaskilti á suðurhlið hússins nr. 9 við Skipagötu skv. áður innsendu samþykki meðeigenda og teikningum.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu á erindinu.