Aðalstræti 6, bílastæðamál

Málsnúmer 2013100142

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 166. fundur - 30.10.2013

Gerður Jónsdóttir mætti í viðtalstíma bæjarfulltrúa 10. október 2013.
Hún keypti Aðalstræti 6 fyrir tveimur árum en ekkert bílastæði er við götuna. Gert er ráð fyrir bílastæðum fyrir nokkur hús skammt frá sem ekki hefur verið gengið frá. Hún kallar eftir áformum bæjarins varðandi frágang á bílastæðunum.

Samkvæmt gildandi deiliskipulagi svæðisins er gert ráð fyrir almennum bílastæðum austan við "Gamla Apótekið" sem til stendur að ganga endanlega frá á næstunni. Einnig skal bent á að almenn bílastæði eru norðan verslunarinnar Brynju til afnota fyrir íbúa hverfisins.