Krókeyrarnöf 17 - umsókn um úrtöku úr kantsteini

Málsnúmer 2013080067

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 456. fundur - 14.08.2013

Erindi dagsett 9. ágúst 2013 þar sem Baldur Friðriksson sækir um úrtöku á kantsteini við hús nr. 17 við Krókeyrarnöf. Meðfylgjandi er teikning.

Skipulagsstjóri hafnar erindinu vegna öryggissjónarmiða þar sem ekki er æskilegt að heimila breiðari útkeyrslu en 6 metra yfir gangstétt.