Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

456. fundur 14. ágúst 2013 kl. 13:00 - 13:55 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Ólafur Jakobsson
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Ólafur Jakobsson
Dagskrá

1.Ásatún 28-32 - umsókn um lóð

Málsnúmer 2013080064Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8. ágúst 2013 þar sem Fjölnir ehf., kt. 530289-2069, sækir um lóð nr. 28-32 við Ásatún. Meðfylgjandi er staðfesting frá Landsbankanum.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið. Skipulags- og byggingarskilmálar gilda.

2.Glerárgata 34 - umsókn um endurnýjun á aðalinngangi

Málsnúmer 2013080016Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 6. ágúst 2013 þar sem Þröstur Sigurðsson f.h. Nývís hf., kt. 460912-0240, sækir um leyfi fyrir endurnýjun á aðalinngangi að verslun á 1. hæð í húsi nr. 34 við Glerárgötu. Meðfylgjandi er teikning eftir Þröst Sigurðsson. Innkomnar teikningar 8. ágúst 2013.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

3.Hólabraut 20 - umsókn um breytingu á þaki

Málsnúmer 2013080063Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8. ágúst 2013 þar sem Anton Örn Brynjarsson f.h. Hrafns Stefánssonar sækir um leyfi til að breyta þaki á húsi nr. 20 við Hólabraut. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Anton Örn Brynjarsson.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

4.Krókeyrarnöf 17 - umsókn um úrtöku úr kantsteini

Málsnúmer 2013080067Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 9. ágúst 2013 þar sem Baldur Friðriksson sækir um úrtöku á kantsteini við hús nr. 17 við Krókeyrarnöf. Meðfylgjandi er teikning.

Skipulagsstjóri hafnar erindinu vegna öryggissjónarmiða þar sem ekki er æskilegt að heimila breiðari útkeyrslu en 6 metra yfir gangstétt.

5.Oddeyrartangi 149132 Bústólpi - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2013070029Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8. júlí 2013 þar sem Gísli Jón Kristinsson f.h. Bústólpa ehf., kt. 541299-3009, sækir um byggingarleyfi við Oddeyrartanga lnr. 149132. Meðfylgjandi eru gátlisti og teikningar eftir Gísla Jón Kristinsson. Innkomnar teikningar og brunahönnun 8. ágúst 2013.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

6.Pílutún 5 - umsókn um stækkun á bílastæði

Málsnúmer 2013080014Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 6. ágúst 2013 þar sem Sigurður Vigfússon sækir um stækkun á bílastæði við hús nr. 5 við Pílutún. Meðfylgjandi er teikning.
Skipulagsstjóri samþykkir umbeðna stækkun. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.

7.Tjarnarlundur 19, íbúð j - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2013070059Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 12. júlí 2013 þar sem Anton Örn Brynjarsson f.h. Péturs Bjarna Gíslasonar sækir um breytingar á húsi nr. 19 við Tjarnarlund. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Hauk Haraldsson. Innkomnar teikningar 8. ágúst 2013.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

8.Laxagata 7 - umsókn um bílastæði

Málsnúmer 2013080083Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 13. ágúst 2013 þar sem Ketill Hólm Freysson sækir um leyfi til að gera bílastæði við hús sitt nr. 7 við Laxagötu. Meðfylgjandi eru teikningar.

Skipulagsstjóri tekur jákvætt í erindið en frestar afgreiðslu þar sem samþykki meðeigenda vantar.

Einnig er óskað eftir að núverandi bílastæði innan lóðar verði færð inn á uppdráttinn.

Fundi slitið - kl. 13:55.