Steypustöð Akureyrar - rekstrarleyfi steypustöðvar

Málsnúmer 2013070096

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 453. fundur - 24.07.2013

Erindi dagsett 15. júlí 2013 þar sem Þór Konráðsson f.h. Steypustöðvar Akureyrar ehf., kt. 540208-1150 sækir um að framlengja leyfi til reksturs steypustöðvar að Sjafnarnesi 2, Akureyri.
Meðfylgjandi er samræmismat fyrir steypuframleiðslu ásamt samningi við Mannvit hf. um gæðamat.

Skipulagsstjóri veitir hér með Steypustöð Akureyrar ehf., kt. 540108-1150, leyfi til reksturs steypustöðvar að Sjafnarnesi 2, Akureyri til 1. júlí 2016 eða þar til samningur við Mannvit hf. um gæðamat steypuframleiðslunnar rennur út.

Leyfið er gefið út með fyrirvara um að gerðar verði ráðstafanir til  að lagfæra þau atriði sem ekki eru í lagi, samanber samræmismat Mannvits.

Einnig er óskað eftir að gæðamatsskýrslur Mannvits verði sendar embættinu á tímabilinu.