Bæjarstjórnarfundir í júlí og ágúst - 2013

Málsnúmer 2013050183

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn - 3340. fundur - 04.06.2013

Lögð fram eftirfarandi tillaga um sumarleyfi bæjarstjórnar Akureyrar 2013:
Í samræmi við 4. mgr. 8. gr. og 5. mgr. 32. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarkaupstaðar samþykkir bæjarstjórn að frá 1. júlí til 31. ágúst 2013 verði sumarleyfi bæjarstjórnar. Ekki verða haldnir fundir í bæjarstjórn á framangreindu tímabili nema þörf krefji eða þriðjungur bæjarfulltrúa krefjist þess. Jafnframt er bæjarráði á þessum tíma heimiluð fullnaðarafgreiðsla þeirra mála sem það telur nauðsynlegt að fái afgreiðslu og lög mæla ekki gegn.

Bæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.