Bæjarstjórn

3340. fundur 04. júní 2013 kl. 16:00 - 17:05 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Starfsmenn
  • Geir Kristinn Aðalsteinsson forseti bæjarstjórnar
  • Hlín Bolladóttir
  • Sigurður Guðmundsson
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Inda Björk Gunnarsdóttir
  • Oddur Helgi Halldórsson
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Logi Már Einarsson
  • Ólafur Jónsson
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Tjarnartún 29 - umsókn um breytingu á deiliskipulagi

Málsnúmer 2013040072Vakta málsnúmer

5. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 15. maí 2013:
Í framhaldi af bókun skipulagsnefndar dags. 24. apríl 2013, leggur Tryggvi Tryggvason f.h. Fjölnis ehf, kt. 530289-2069, fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi Naustahverfis, reit 28.
Einungis er um að ræða minniháttar breytingu í texta greinargerðar um stöllun húss og er breyting sem varðar Akureyrarkaupstað og lóðarhafa. Þess vegna leggur skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt í samræmi við 2. málslið, 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.

2.Aðalskipulagsbreyting vegna akstursíþrótta- og skotsvæðis, skipulagslýsing

Málsnúmer 2013040061Vakta málsnúmer

1. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 29. maí 2013:
Skipulagsstjóri lagði fram skipulagslýsingu dags. 29. maí 2013, unna af Árna Ólafssyni arkitekt hjá Teiknistofu Arkitekta, Gylfa Guðjónssyni og félögum ehf, vegna stækkunar akstursíþrótta- og skotsvæðis á Glerárdal.
Annarsvegar er lögð til breyting á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018 á svæði 1.61.3-O og hins vegar á deiliskipulagi akstursíþrótta- og skotsvæðis á Glerárdal, sem samþykkt var í bæjarstjórn Akureyrar 1. júlí 2008.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að skipulagslýsingin verði kynnt almenningi og leitað verði umsagnar Skipulagsstofnunar og annarra umsagnaraðila um hana.
Andrea S. Hjálmsdóttir V-lista óskar bókað að hún ítreki fyrri bókun V-lista frá 15. maí sl.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 10 samhljóða atkvæðum.

Ólafur Jónsson D-lista sat hjá við afgreiðslu.

3.Aðalskipulagsbreyting Hamrar og Gata sólarinnar, skipulagslýsing

Málsnúmer 2013040143Vakta málsnúmer

2. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 29. maí 2013:
Skipulagsstjóri lagði fram skipulagslýsingu dags. 29. maí 2013, unna af Árna Ólafssyni arkitekt hjá Teiknistofu Arkitekta, Gylfa Guðjónssyni og félögum ehf, vegna stækkunar tjaldsvæðis að Hömrum og útilífsmiðstöðvar skáta auk breytingar á frístundasvæði norðan Kjarnalundar, Götu sólarinnar.
Lögð er til lítilsháttar breyting á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018 á tjaldsvæði að Hömrum og útilífsmiðstöð skáta, svæðum nr. 3.41.1-O og 3.41.4-O.
Einnig er lögð til breyting á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018 á skipulagssvæði orlofsbyggðarinnar norðan Kjarnalundar, svæðum nr. 3.21.16-F og 3.21.17-F, ásamt austasta hluta íbúðarsvæðis nr. 3.21.15-Íb sem minnkar tilsvarandi.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að skipulagslýsingin verði kynnt almenningi og leitað verði umsagnar Skipulagsstofnunar og annarra umsagnaraðila um hana.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.

4.Austursíða, athafnasvæði - deiliskipulag

Málsnúmer 2012110215Vakta málsnúmer

3. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 29. maí 2013:
Skipulagsstjóri lagði fram tillögu að deiliskipulagi athafnasvæðis við Austursíðu í samræmi við bókun nefndarinnar frá 28. janúar 2009, mál BN070121. Tillagan er unnin af Gísla Kristinssyni og dags. 29. maí 2013.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.

5.Kosning bæjarráðs til eins árs 2013-2014

Málsnúmer 2013050184Vakta málsnúmer

Kosning bæjarráðs til eins árs - 5 aðalmenn og 5 til vara.

Lögð fram tillaga með nöfnum þessara aðalmanna:

Halla Björk Reynisdóttir formaður

Oddur Helgi Halldórsson varaformaður

Geir Kristinn Aðalsteinsson

Andrea Sigrún Hjálmsdóttir

Sigurður Guðmundsson

Guðmundur Baldvin Guðmundsson áheyrnarfulltrúi

Logi Már Einarsson áheyrnarfulltrúi

Ólafur Jónsson áheyrnarfulltrúi

og varamanna:

Hlín Bolladóttir

Inda Björk Gunnarsdóttir

Tryggvi Þór Gunnarsson

Edward H. Huijbens

Anna Hildur Guðmundsdóttir

Petrea Ósk Sigurðardóttir áheyrnarfulltrúi

Ragnar Sverrisson áheyrnarfulltrúi

Njáll Trausti Friðbertsson áheyrnarfulltrúi

Þar sem ekki komu fram fleiri nöfn en kjósa átti lýsti forseti þetta fólk réttkjörið.

6.Kosning forseta og skrifara til eins árs 2013-2014

Málsnúmer 2013050185Vakta málsnúmer

1. Kosning forseta bæjarstjórnar.
2. Kosning 1. og 2. varaforseta bæjarstjórnar.
3. Kosning 2ja skrifara bæjarstjórnar og 2ja til vara.

1. Kosning forseta bæjarstjórnar.

Við kosningu forseta hlaut bæjarfulltrúi Geir Kristinn Aðalsteinsson 11 atkvæði.
Geir Kristinn Aðalsteinsson er því réttkjörinn forseti bæjarstjórnar til eins árs.

2. Kosning 1. og 2. varaforseta bæjarstjórnar.
Við kosningu 1. varaforseta bæjarstjórnar hlaut bæjarfulltrúi Oddur Helgi Halldórsson 9 atkvæði, 2 seðlar voru auðir.
Lýsti forseti Odd Helga Halldórsson réttkjörinn sem 1. varaforseta.

Við kosningu 2. varaforseta bæjarstjórnar hlaut bæjarfulltrúi Ólafur Jónsson 11 atkvæði.
Lýsti forseti Ólaf Jónsson réttkjörinn sem 2. varaforseta.

3. Kosning 2ja skrifara bæjarstjórnar og 2ja til vara.

Fram kom tillaga með nöfnum þessara aðalmanna:

Hlín Bolladóttir

Sigurður Guðmundsson

og varamanna:

Inda Björk Gunnarsdóttir

Logi Már Einarsson

Þar sem ekki komu fram fleiri nöfn en kjósa átti lýsti forseti þetta fólk réttkjörið.

7.Bæjarstjórnarfundir í júlí og ágúst - 2013

Málsnúmer 2013050183Vakta málsnúmer

Lögð fram eftirfarandi tillaga um sumarleyfi bæjarstjórnar Akureyrar 2013:
Í samræmi við 4. mgr. 8. gr. og 5. mgr. 32. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarkaupstaðar samþykkir bæjarstjórn að frá 1. júlí til 31. ágúst 2013 verði sumarleyfi bæjarstjórnar. Ekki verða haldnir fundir í bæjarstjórn á framangreindu tímabili nema þörf krefji eða þriðjungur bæjarfulltrúa krefjist þess. Jafnframt er bæjarráði á þessum tíma heimiluð fullnaðarafgreiðsla þeirra mála sem það telur nauðsynlegt að fái afgreiðslu og lög mæla ekki gegn.

Bæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.

8.Skýrsla bæjarstjóra

Málsnúmer 2010090095Vakta málsnúmer

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri fór yfir helstu atriði í störfum sínum frá síðasta bæjarstjórnarfundi.
Eftirtaldar fundargerðir eru lagðar fram til kynningar:

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra 7., 15., 22. og 29. maí 2013
Bæjarráð 14., 16. og 30. maí 2013
Félagsmálaráð 15. maí 2013
Framkvæmdaráð 3., 17. og 21. maí 2013
Fræðslunefnd 22. maí 2013
Íþróttaráð 16. maí 2013
Samfélags- og mannréttindaráð 15. maí 2013
Skipulagsnefnd 15. og 29. maí 2013
Skólanefnd 6. og 27. maí 2013
Stjórn Akureyrarstofu 2. og 23. maí 2013
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar 3. og 17. maí 2013
Umhverfisnefnd 14. maí 2013

Hægt er að nálgast fundargerðirnar á heimasíðu Akureyrarbæjar / www.akureyri.is /
Stjórnkerfið / Fundargerðir

Fundi slitið - kl. 17:05.