Viðhorf foreldra til daggæslu í heimahúsum - skýrsla 2013

Málsnúmer 2013050159

Vakta málsnúmer

Skólanefnd - 9. fundur - 27.05.2013

Lögð fram til kynningar skýrslan Viðhorf foreldra á Akureyri til daggæslu í heimahúsum. Skýrslan var unnin af Jennýju Gunnbjörnsdóttur og Trausta Þorsteinssyni hjá Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri að ósk skóladeildar Akureyrarbæjar.

Trausti Þorsteinsson kom á fundinn og kynnti niðurstöður skýrslunnar og þakkar skólanefnd honum fyrir.