Skólanefnd

9. fundur 27. maí 2013 kl. 14:00 - 16:13 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Preben Jón Pétursson formaður
  • Anna Sjöfn Jónasdóttir
  • Sigríður María Hammer
  • Helgi Vilberg Hermannsson
  • Sædís Gunnarsdóttir
  • Áslaug Magnúsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Valur Sæmundsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Hrafnhildur G Sigurðardóttir leikskólafulltrúi
  • Karl Frímannsson fræðslustjóri ritaði fundargerð
Dagskrá
Hjörtur Narfason áheyrnarfulltrúi D-lista mætti ekki á fundinn.
Guðrún Elva Lárusdóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna mætti ekki á fundinn.

1.Skákkennsla í skólum

Málsnúmer 2013050122Vakta málsnúmer

Kynning á skýrslunni Skák eflir skóla.
Áskell Örn Kárason mætti á fundinn undir þessum lið.
Áskell kynnti skýrsluna og óskar eftir samstarfi grunnskólanna á Akureyri og Skákfélags Akureyrar um skákkennslu í skólum bæjarins.

Skólanefnd þakkar Áskeli fyrir kynninguna.

2.Langtímaáætlun - fræðslumál

Málsnúmer 2013020252Vakta málsnúmer

Fræðslustjóri lagði fram til kynningar 10 ára áætlun fyrir fræðslu- og uppeldismál.

3.Viðurkenningar skólanefndar 2013

Málsnúmer 2012050030Vakta málsnúmer

Kynning á stöðu tilnefninga vegna viðurkenninga skólanefndar 2013.

Helgi Vilberg Hermannsson A-lista verður fulltrúi skólanefndar í dómnefndinni.

4.Dagforeldrar - ósk um endurskoðun á samningi

Málsnúmer 2013010308Vakta málsnúmer

Fræðslustjóri kynnti stöðu viðræðna við dagforeldra vegna endurskoðunar á samningi.

5.Viðhorf foreldra til daggæslu í heimahúsum - skýrsla 2013

Málsnúmer 2013050159Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar skýrslan Viðhorf foreldra á Akureyri til daggæslu í heimahúsum. Skýrslan var unnin af Jennýju Gunnbjörnsdóttur og Trausta Þorsteinssyni hjá Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri að ósk skóladeildar Akureyrarbæjar.

Trausti Þorsteinsson kom á fundinn og kynnti niðurstöður skýrslunnar og þakkar skólanefnd honum fyrir.

6.Stærðfræðikennsla í 10. bekk - ábending um þörf á endurskoðun hennar

Málsnúmer 2013050195Vakta málsnúmer

Opið bréf til skólanefndar Akureyrarbæjar, dags. 23. maí 2013 þar sem bent er á þörfina á endurskoðun stærðfræðikennslu í 10. bekk og aukið samstarf grunn- og framhaldsskólakennara til að búa nemendur betur undir nám í framhaldsskóla.

Skólanefnd þakkar bréfriturum, þeim Heimi Pálssyni, Helenu Rut Pétursdóttur, Jóni Óskari Andréssyni og Kamillu Dóru Jónsdóttur nemendum í 1. bekk MA og vill bjóða þeim á næsta skólanefndarfund til viðræðna um málið.

Fræðslustjóra er falið að koma með tillögu að svari við bréfinu.

Helga María Harðardóttir fulltrúi leikskólakennara vék af fundi kl. 16:05.

Fundi slitið - kl. 16:13.