Sundlaug Akureyrar - beiðni um kaup á tímatökubúnaði

Málsnúmer 2013030030

Vakta málsnúmer

Íþróttaráð - 127. fundur - 07.03.2013

Erindi dags. 22. febrúar 2013 frá Höllu B. Halldórsdóttur formanni Sundfélagsins Óðins vegna beiðni til kaupa á tímatökubúnaði við Sundlaug Akureyrar.

Íþróttaráð frestar afgreiðslu málsins og felur formanni íþróttaráðs og forstöðumanni íþróttamála að leita lausna í samstarfi við Sundfélagið Óðinn.