KA svæðið og Akureyrarvöllur - ósk um styrk vegna vetrarskaða á grasvöllum

Málsnúmer 2013020256

Vakta málsnúmer

Íþróttaráð - 127. fundur - 07.03.2013

Erindi dags. 19. febrúar 2013 frá Sævari Péturssyni framkvæmdastjóra KA þar sem óskað er eftir styrk vegna björgunaraðgerða á grasvöllum á KA svæði og Akureyrarvelli.

Íþróttaráð getur ekki orðið við erindinu þar sem ekki er gert ráð fyrir fjármagni í slíkar styrkveitingar í fjárhagsáætlun ársins 2013.