Óðinsnes 2 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2012121244

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 427. fundur - 09.01.2013

Erindi dagsett 21. desember 2012 þar sem Stefán Erlingsson f.h. Byko ehf., kt. 460169-3219, sækir um leyfi til byggingar frístundahúss á lóðinni Njarðarnesi 4 sem síðan verður staðsett á lóð nr. 2. við Óðinsnes sem sýningarhús. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Magnús H. Ólafsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 430. fundur - 29.01.2013

Erindi dagsett 21. desember 2012 þar sem Stefán Erlingsson f.h. Byko ehf., kt. 460169-3219. sækir um leyfi til að byggja frístundahús á lóð nr. 4 við Njarðarnes og fá stöðuleyfi fyrir það sem sýningarhús á lóðinni nr. 2 við Óðinsnes. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Magnús H. Ólafsson og afstöðumynd sem sýnir geymslustað þess á lóðinni.
Innkomnar teikningar 23. janúar 2013.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.